Fara beint í efni

Frá tilboði að tekjum án tvískráningar

Byggðu tilboð út frá vörum og þjónustu, sendu þau í undirritun og tengdu samþykkt tilboð við sölutækifæri og áskriftir. Upplýsingarnar fylgja ferlinu í stað þess að starfsfólk þurfi að skrá þær aftur í næsta kerfi.

Tilboð og áskriftir í Grunni með samþykktum tilboðum og endurteknum tekjum

Byggðu tilboð úr sömu upplýsingum og salan notar

Veldu vörur, magn, afslætti og virðisaukaskatt. Heildarverð reiknast sjálfkrafa og tilboðið tengist viðskiptavininum og sölutækifærinu.

Fylgstu með stöðunni

Sjáðu hvort tilboð er í vinnslu, sent, samþykkt eða hafnað.

Breyttu samþykktu tilboði í raunverulegt næsta skref

Þegar tilboð er samþykkt er hægt að vinna áfram með söluna og stofna endurteknar þjónustulínur sem áskriftir.

Sjáðu endurteknar tekjur hjá réttum viðskiptavini

Mánaðarverð, endurnýjun, staða og uppruni áskriftar eru sýnileg á viðskiptavinaspjaldinu og í skýrslum.

Styttu leiðina frá samþykki að afhendingu og tekjum