Sjáðu alla söluna á einu bretti
Færðu tækifæri á milli sölustiga, sjáðu upphæðir, eigendur og næstu verkefni og aðlagaðu ferlið að því hvernig fyrirtækið selur.
Sjáðu hvað er í pípunni, hvaða tækifæri þurfa athygli og hvaða sala er líkleg til að skila sér. Grunnur hjálpar söluteyminu að einbeita sér að næsta skrefi í stað þess að viðhalda kerfinu.

Færðu tækifæri á milli sölustiga, sjáðu upphæðir, eigendur og næstu verkefni og aðlagaðu ferlið að því hvernig fyrirtækið selur.
Tækifæri tengjast fyrirtækjum, tengiliðum, tölvupóstum, verkefnum, fundum og tilboðum. Sölumaðurinn sér því ekki aðeins hvar tækifærið er statt heldur einnig hvað þarf að gerast til að færa það áfram.
Líkur hvers sölustigs hjálpa stjórnendum að greina á milli heildarvirðis pípunnar og veginnar tekjuspár.
Búðu til fleiri en eitt söluborð, breyttu stigum, litum og líkum og bættu við þeim upplýsingum sem skipta ykkar sölu máli.

Vafrakökur
Þessi vefur notar nauðsynlegar vafrakökur til að virka. Aðrar bætast aðeins við ef þú samþykkir þær. Nánar um persónuvernd