Fara beint í efni

Grunnur á að tengja vinnuna saman, ekki biðja ykkur að byrja upp á nýtt

Grunnur er hannaður til að vinna með tölvupósti, vefjum, bókhaldskerfum og öðrum kerfum sem fyrirtækið notar nú þegar. Tiltækar tengingar ráðast af uppsetningu, aðgangi og stöðu hverrar samþættingar.

Tölvupóstur

Tengdu sameiginleg eða persónuleg pósthólf svo viðeigandi samskipti birtist hjá réttum viðskiptavini.

  • Sameiginlegt pósthólf (Gmail)

    Í prófun

    Póstur á sameiginlegt þjónustunetfang verður að samtali í þjónustuborðinu og svör fara út frá sama netfangi. Pósthólfið er áfram ykkar.

  • Persónulegt pósthólf (Gmail)

    Í prófun

    Tengdu eigið pósthólf svo samskipti þín við viðskiptavini birtist á réttum færslum. Þú sérð þinn póst; aðrir sjá hann ekki.

  • Microsoft 365 pósthólf

    Væntanleg

    Stuðningur við pósthólf í Outlook og Microsoft 365, bæði sameiginleg og persónuleg.

Vefur og þjónusturásir

Tengdu vefspjall, eyðublöð eða eigin kerfi við þjónustuborðið.

  • Vefspjall

    Tilbúin

    Spjallhnappur á eigin vef með einni skriftulínu. Samtöl gesta berast beint í þjónustuborðið.

  • Vefform

    Tilbúin

    Hýst fyrirspurnarform og endapunktur fyrir eigin vefform. Innsendingar verða að þjónustusamtölum með öllum reitum.

  • Facebook Messenger

    Væntanleg

    Skilaboð af Facebook-síðu fyrirtækisins berast í þjónustuborðið og svör fara til baka á sömu rás.

  • Instagram

    Væntanleg

    Skilaboð af Instagram-reikningi fyrirtækisins berast í þjónustuborðið.

Bókhald og áskriftir

Flyttu upplýsingar úr tengdum bókhaldskerfum þar sem viðeigandi samþætting er til staðar.

  • DK

    Væntanleg

    Innflutningur áskrifta og tenging við bókhaldsferla í DK.

  • Business Central

    Væntanleg

    Innflutningur áskrifta og tenging við bókhaldsferla í Microsoft Dynamics 365 Business Central.

  • Fyrirtækjaskrá

    Væntanleg

    Uppfletting við stofnun fyrirtækis. Kennitala, heimilisfang og félagaform fylgja færslunni frá upphafi.

  • Rafræn undirritun

    Væntanleg

    Rafræn undirritun tilboða og samninga með rafrænum skilríkjum.

Forritaskil

Notaðu API til að senda upplýsingar úr eigin kerfum inn í Grunn.

  • Forritaskil (API)

    Tilbúin

    Opnaðu samtöl og sendu upplýsingar úr eigin kerfum inn í Grunn með API-lykli.

  • Vefkrókar (webhooks)

    Væntanleg

    Láttu Grunn láta ykkar kerfi vita þegar atburðir gerast í vinnusvæðinu.

  • MCP-tenging við gervigreindarforrit

    Væntanleg

    Tengdu vinnusvæðið við gervigreindarforrit á borð við Claude og ChatGPT með stýrðum aðgangsheimildum.

Ræða tengingar við sérfræðing