Fara beint í efni

Svaraðu viðskiptavinum strax, líka þegar enginn er við tölvuna

Spjallmenni Grunns svarar spurningum á vefnum út frá upplýsingum fyrirtækisins. Viðskiptavinurinn fær hjálp strax og samtalið tengist beint við þjónustuna í Grunni þegar starfsfólk þarf að taka við.

Spjallmenni Grunns svarar viðskiptavini á vefsíðu

Tengingar

Spjallmennið svarar þar sem viðskiptavinirnir eru

Pósthólf, vefspjall og samfélagsmiðlar renna inn í sama þjónustuborðið, svo samtölin lenda á einum stað sama hvaðan þau berast.

  • Gmail
  • Vefspjall
  • Outlook
  • WhatsApp
  • Messenger
  • X
  • Instagram
  • Bókun
Vírarammi af vefsíðu með spjallmenni Grunns neðst í hægra horni
Spjallmenni Grunns

Láttu einföldu spurningarnar svara sér sjálfar.

Gefðu viðskiptavinum svör á meðan þörfin er til staðar. Spjallmennið svarar út frá þeim upplýsingum sem þið veljið, tekur við algengum spurningum og færir flóknari samtöl áfram til teymisins með samhengi varðveitt.

Gefðu svörin á meðan þörfin er til staðar

Viðskiptavinurinn þarf ekki að leita um vefinn, senda tölvupóst og bíða eftir svari. Hann spyr einfaldlega í spjallinu og fær hjálp strax.

Spjallmennið getur svarað algengum spurningum um þjónustu, opnunartíma, ferla og annað sem fyrirtækið hefur þegar upplýsingar um.

Skjámynd úr Grunni: upphaf spjalls þar sem viðskiptavinur spyr og fær svar strax

Svarar út frá ykkar eigin þekkingu

Spjallmennið notar þær heimildir sem þið veljið. Tengið vefsíðuna, skjöl eða annað efni sem inniheldur svörin sem viðskiptavinirnir þurfa.

Þannig þarf teymið ekki að skrifa hvert svar fyrir sig eða viðhalda sérstökum lista af fyrirfram ákveðnum spurningum og svörum.

Skjámynd úr Grunni: Þekking spjallmennisins með tengdum heimildum

AI þegar það dugar. Manneskja þegar hún skiptir máli.

Ekki allar spurningar eiga að enda hjá gervigreind.

Hvert gestaspjall verður að samtali í Þjónustuborði Grunns. Þar sér starfsfólkið hvað hefur þegar verið rætt og getur tekið samtalið áfram án þess að viðskiptavinurinn þurfi að byrja aftur frá byrjun.

Skjámynd úr Grunni: gestaspjall orðið að samtali í Þjónustuborðinu

Láttu Spjallmennið líta út og tala eins og ykkar fyrirtæki

Stilltu upplifunina að vörumerkinu og þjónustunni.

Veldu nafn, mynd, lit, kveðju, tungumál og flýtisvör. Þið getið líka gefið Spjallmenninu eigin fyrirmæli um hvernig það á að svara og hvaða tón það á að nota.

Skjámynd úr Grunni: fyrirmæli spjallmennisins um hvernig það á að svara

Frá Grunni yfir á vefinn með einum kóðabút

Þegar Spjallmennið er tilbúið er einum innleiðingarbút bætt við vefsíðuna. Eftir það stjórnið þið útliti, kveðju, þekkingu og öðrum stillingum úr Grunni. Breytingarnar þurfa ekki nýja innleiðingu á vefnum í hvert skipti.

  1. Gefðu því þekkinguna

    Veldu upplýsingarnar sem Spjallmennið má nota.

  2. Stilltu upplifunina

    Veldu útlit, kveðju og hvernig það á að svara.

  3. Settu það á vefinn

    Settu einn kóðabút á síðuna og byrjaðu að taka á móti samtölum.

Minni tími í sömu spurningarnar. Meiri tími í þjónustuna sem þarfnast fólks.

Láttu Spjallmennið sjá um einföldu spurningarnar strax og tengdu flóknari samtöl við teymið þegar þarf.

Prófaðu spjallmennið á ykkar vef.

Bókaðu kynningu og sjáðu hvernig spjallmennið svarar út frá ykkar eigin upplýsingum.